Heimafréttir

Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)

föstudagur, júní 30, 2006

Hólarokk!!!!!

Já núna um helgina er það sem er kallað Hólarokk. Eins og í fyrra er rok og rigning nema núna er það ennþá verra. Hér er allt á floti í bænum á eftir að versna á morgun veðrið. Mér er spurn hvenær er veðrið nógu slæmt að þessi familia getur fært helgina til vegna veðurs. Við hjónin höfum þá áráttu að vilja vera þurr og helst heit, ekki að berjast að faðma ekki þakið á tjaldinu vegna regns og mikils vinds. Á morgun er spáð 11m/s og RIGNING. Ég legg til að þau færi helgina vegna þess að þessi helgi bara býður ekki upp á gott veður.

sunnudagur, júní 25, 2006

Heimkoma!!

Tengdó komu frá Portúgal í 2 vikna dvöl, brún, södd og útkvíld að þeirra sögn. Dóttir mín mátti valla við að segja hæ við þau því henni leið svo á að komast í töskurnar og sjá hvað hún fékk, alveg hand viss um að hún ætti eitthvað þarna í þeim og hún hafði náttúrulega rétt fyrir sér. Hún fékk pils, bol, sandala og armband. Hún er svo mikið ofurbeib í þessu. Ásdís fékk kjól, bol og hund sem geltir, hleypur og ljós í augum. Hún er stórhrifin af honum, bara getur ekki klappað honum þegar hann er á ferðinni. Æ þessi elska, þetta lagast bara smá tími og hún verður farin að setja hann sjálf í gang. Við hjónin fengum sitt hvorann bolinn. Hann fékk með "How european´s do it" og ég fékk textann "A boss is like a diaper, always on your ass and full of shit". Er verið að gera grín af mér eða honum??? Allavegana geggjaður texti, svo fengum við eitthvað á vegginn sem Indjáni gerði frá einhverju útlandinu.
Well píps heyri í ykkur seinna.

ATH!!!

Já vitið þið hvað...dóttir mín klæddi sig sjálf í morgun. Hún fór í náttpeysuna sína reyndar ekki rétt enda er hún bara 14 mánaða. Mittið endaði í hálsmálinu og fótur í ermi.....en það er svo sem ekki aðalmálið he he.
Andrea þessi yndislega rós var hjá ömmu sinni, vinkona hennar (ömmu) kom í heimsókn. Vinkonan ætlaði að vera kammó við Andreu og heilsa henni heyrist í minni "ég má ekki tala við ókunnuga" snéri upp á sig og fór að leika sér. Mamma var búin að tala við vinkonu sína í dálitla stund þegar dóttir mín fer til hennar og spyr " þekkir þú hana" mamma sagðist þekkja hana og hún væri vinkona sín. Þá mátti þessi vinkona mömmu tala við hana. Ég sagði Andreu að hún mætti ekki tala við neinn nema að ég, pabbi hennar og amma hennar þekki viðkomandi og dóttir mín skildi þetta og fer eftir þessu. Blessun sé drottni :D

Rúntur!!!

Krakkarnir og ég fórum til Flúða að kíkja á vinafólk okkar sem var í tjaldferðalagi. Það var æðislegt sitja og drekka kaffi við umræður, horfa á krakkana leika sér. Já góðar stundir.
Á heimleiðinni var ég að keyra inn á þjóðveg eitt, bíll fyrir framan mig sem var í hægri hröðun. ég var ekki búin að vera 10 sek inn á veginum þegar ég ákveð að taka framúr...við það heyri ég skrítið hljóð og skugga fyrir aftann og eitthvða í baksýnisspeglinum.....ég held bara áfram upp og yfir á hina við það sé ég mótorhjól við hliðina á mér. Hann gefur í við hliðina á mér og gefur mér hnefann upp eins og ég hefði svínað fyrir hann hmmmm. Gerði ég það??? Hann gefur í prjónar fram úr mér svo birtast 2 félagar hanns líka sem fara framúr. Stuttu seinna sé ég ljós þá var búið að taka félagann við ofhraðann akstur. Þess vegna spyr ég svínaði ég á hann eða kom hann á mikilli siglingu og ætlaði að taka framúr og ekki gefa mér tækifæri að sjá hann??? Allavegana hélt ég áfram yfir heiðina og áleiðis heim. Hva haldiði félagarnir voru búnir að ná mér á litlu kaffistofunni svinguðu framúr mér og hurfu út í buskann b.t.w. það var sko ekki lítil umferð. Þeir hafa verið að rúnta á ca. 150 km/klst í um ferð sem er 100 km/klst.
Bara þeir mótorhjólafólk sem sjá þetta blogg.....gefa okkur (vitleysingunum) að sjá ykkur það sést ekkert í ykkur fyrr en þið eruð farin að kyssa rassinn á bílnum alveg á mörkunum að þið þurfið að banka í bílinn til að maður viti af ykkur. Lítill og lipur en ósjáanlegur :S
Kv. Heimaliðið

Vinaferð...

Já ég og Helga aftur fórum með krakkana í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn eftir stutta setu yfir kaffibolla í garðinum. Þar voru krakkarnir að skoða dýrin náttúrulega og klappað þeim sem hægt var að ná í.
Í húsdýragarðinn var farið í dýnutrambolínið þar (veit ekki hvað nafnið er á því í raun) en það er upplásin dýna sem er rosalega gaman að hoppa á......sérstaklega fyrir manneskju eins og mig sem nær frekar hátt muhahahaha......þegar ég byrja að hoppa fara hinir krakkarnir af hmmmm held að þeir kastist hægt og rólega út af hehe sem er frekar fyndið. Ásdísi og Aroni litla fannst þetta ekkert minna skemmtilegt heldur en Andrea, Aron og Alex. Eftir mikið hopp og hí var farið í klifurskipið og smábarnakastalann.....þar voru svo mikið af krökkum úr fótboltaliði á aldrinum 6-8 ára held ég að við vorum ekki viss hvort að óhætt væri að sleppa litlu laus. Þetta var frábært svo gaman hjá þeim öllum, meðan sátum við Helga og tjöttuðum um daginn og veginn með smá veðurumræðum :P Það var svo erfitt að fara vegna mikils fjörs en svo varð kl var næstum lokun...
Við segjum takk fyrir okkur og sjáumst síðar.

miðvikudagur, júní 21, 2006

framhald af Akureyrarsögunni :)

Við komumst loksins inn á svæðið eftir að sitja í röð í allavegana 5 mín með fullum unglingum. Við drifum okkur að henda tjaldinu upp....hetjan hann Offi gerði það þrátt fyrir kulda og þreytu. Eftir þessa uppsettningu var tillt sér niður þegar allt var readdy og fengið sér bjór horft á krakkana leika sér við góðar umræður um daginn og veginn. Framhjá okkur gékk einn sem ætlaði að sýna vinum sínum djásnið (mótorhjól) sitt sem var aðeins neðar en við vorum, þandi það og sýndi afl þess....3 mín liðu og gæslan var mætt rak krakkana til baka á sitt svæði. Góð þjónusta það. Litum á klukkuna hún var 5 mín í 02 krakkarnir enn uppi og allir sofnaðir nema djammliðið, uss hvað við erum frábærir foreldrar.
Daginn eftir vaknaði mínar kl 09 hinir voru stein sofandi. Við fórum í sturtu og drifum okkur í morgunmat þar hittum við góða vinkonu mína Þóru og son hennar Jakob. Við eyddum fyrri hluta degi saman sem var frábært og yndislegur tími.
Hún Auðbjörg, Marínó og Díana voru á Akureyri líka og auðvitað var reynt að hitta á þau. Ég og Auðbjörg ætluðum að sjá bílasýninguna fórum labbandi með krakkana sem var hressandi. Nema við erum svo Íslenskar að við viltumst og gengum í kringum sýninguna lol meiri gellurnar.
Um kvöldið var grillað dýrindis kræsingar og drukkið smá bjór, meiri umræður. Kallarnir fóru á smá rall en við kellurnar fórum bara að sofa. Börnin fóru snemma að sofa södd, þreytt og viljug.
Auðvitað eru mín börn fyrst á fætur kl:09 jæja hvað um það Helga og hennar krakkar rifin á fætur í morgunmat í bakaríinu góða. Rúntað til Jólalandsins/hússins sem var æðislegt krakkarnir rosalega hrifnir. Drifið sig svo til baka í tjaldið grillaðir hamborgarar kvatt svo brunað í bæinn. Æðislegt, endað í Nings hjá okkur.
með góðri kveðju Heimaliðið

Halló Akureyri!!!

Vá ég er 2 búin að reyna að segja frá ferðinni sem við fórum um helgina en það virðist vera of löng saga svo mál mitt verur aðeins styttra.
Helgin var frábær og vona að við förum aftur á næsta ári. Ég þakka þeim sem ég eyddi helginni með fyrir þessa frábæru tíma. Krakkarnir voru rosalega sáttir og kátir.
Mkv. Heimaliðið

Halló Akureyri

Seinustu helgi var farið á Akureyri með Helgu, Elmari, Alexi og Aroni sonum þeirra. Geggjað stuð!!!
Lögðum af stað kl:17 brunað úr bænum.....kallinn koma á eftir okkur á fákinum fráa Hondunni.
Það var eins og einhver risi stæði yfir Íslandi og helti úr baðkarinu yfir það allavegana vesturlandið. Manni var hætt að standa á sama. Offi var ca. klukkutíma á eftir okkur :)
Á seinustu heiðinni til Akureyrar ældi Ásdís yfir sig...aumingja stelpan ég varð að klæða hana úr í vindi og úða.....ég reif hana úr fór framí og klæddi hana í samfellu og sokkabuxur. Ojj þetta var ógeðslegt en svona er þetta. Þannig að við mættum til Akureyrar kl:00. Það var röð inn á svæðið, enda náði Offi okkur þar.....þessi elska. Allir voru látnir sýna skilríki (ung stelpa fyrir framan mig verður 18 í júlí og hún fékk ekki að koma inn, kom allaleiðina frá Reykjavík, þar stóð hún og vissi ekkert hvað hún átti að gera næst). Tjaldsvæðið var skipt fjölskyldufólk sér og partýfólk sér.

þriðjudagur, júní 20, 2006

Heimalingar

Já ætli maður verður ekki bara að vera memm.....allir blogga nema ég hehe!!
Hér ætla ég að segja hvað er að frétta af okkur sem fjöslkyldu og hvað mér finst um hina ýmsu hluti.
Svo er ykkur náttúrulega velkomið að segja ykkar skoðanir og hvað er að frétta af ykkur :)