framhald af Akureyrarsögunni :)
Við komumst loksins inn á svæðið eftir að sitja í röð í allavegana 5 mín með fullum unglingum. Við drifum okkur að henda tjaldinu upp....hetjan hann Offi gerði það þrátt fyrir kulda og þreytu. Eftir þessa uppsettningu var tillt sér niður þegar allt var readdy og fengið sér bjór horft á krakkana leika sér við góðar umræður um daginn og veginn. Framhjá okkur gékk einn sem ætlaði að sýna vinum sínum djásnið (mótorhjól) sitt sem var aðeins neðar en við vorum, þandi það og sýndi afl þess....3 mín liðu og gæslan var mætt rak krakkana til baka á sitt svæði. Góð þjónusta það. Litum á klukkuna hún var 5 mín í 02 krakkarnir enn uppi og allir sofnaðir nema djammliðið, uss hvað við erum frábærir foreldrar.
Daginn eftir vaknaði mínar kl 09 hinir voru stein sofandi. Við fórum í sturtu og drifum okkur í morgunmat þar hittum við góða vinkonu mína Þóru og son hennar Jakob. Við eyddum fyrri hluta degi saman sem var frábært og yndislegur tími.
Hún Auðbjörg, Marínó og Díana voru á Akureyri líka og auðvitað var reynt að hitta á þau. Ég og Auðbjörg ætluðum að sjá bílasýninguna fórum labbandi með krakkana sem var hressandi. Nema við erum svo Íslenskar að við viltumst og gengum í kringum sýninguna lol meiri gellurnar.
Um kvöldið var grillað dýrindis kræsingar og drukkið smá bjór, meiri umræður. Kallarnir fóru á smá rall en við kellurnar fórum bara að sofa. Börnin fóru snemma að sofa södd, þreytt og viljug.
Auðvitað eru mín börn fyrst á fætur kl:09 jæja hvað um það Helga og hennar krakkar rifin á fætur í morgunmat í bakaríinu góða. Rúntað til Jólalandsins/hússins sem var æðislegt krakkarnir rosalega hrifnir. Drifið sig svo til baka í tjaldið grillaðir hamborgarar kvatt svo brunað í bæinn. Æðislegt, endað í Nings hjá okkur.
með góðri kveðju Heimaliðið

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home