Helgin yfirstaðin!!!
Já þetta var mjög gaman að hitta ættarstóðið. Allir hressir og kátir sem er náttúrulega nauðsynlegt. Verð nú að segja að það er mikill söngur í mínu fólki, syngur hátt og vel, já og rosalega mikið. Það var byrjað snemma og allir sofnaðir milli 00-01. Þegar var vaknað var náttúrulega létt á sér. Andrea var í næstum himnaríki þarna svo mikið af krökkum og nóg að bralla. Ásdís lét fólk sko dúlla við sig enda allir viljugir :D Þær sofnuðu sælar og mjög þreyttar. Daginn eftir farið svo í kaffi til hennar ömmu í bústaðinn hennar. Ahhh það var svo kósý. Allir mættu þangað eitt af öðru í hlýjuna og notalegheitin. Já hún amma er svo kósý.
Uppúr hádegi var pakkað saman....reyndar um leið og kallbaunin vaknaði, fólkið kvatt og svo brunað heim Þingvallaleiðina rosalega gaman. Á blogginu hanns Offa segir hann að ég hafi reynt að stinga hann af sem er ekki satt ég nennti bara ekki að stoppa og taka fram úr sama liðinu. Má nú segja fyrst ég var byrjuð að fara framúr var náttúrulega reynt en minn mætti eins og elding í stélið á mér og framúr. hehe.
Well ppls seinna.
