Heimafréttir

Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)

sunnudagur, júní 25, 2006

Vinaferð...

Já ég og Helga aftur fórum með krakkana í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn eftir stutta setu yfir kaffibolla í garðinum. Þar voru krakkarnir að skoða dýrin náttúrulega og klappað þeim sem hægt var að ná í.
Í húsdýragarðinn var farið í dýnutrambolínið þar (veit ekki hvað nafnið er á því í raun) en það er upplásin dýna sem er rosalega gaman að hoppa á......sérstaklega fyrir manneskju eins og mig sem nær frekar hátt muhahahaha......þegar ég byrja að hoppa fara hinir krakkarnir af hmmmm held að þeir kastist hægt og rólega út af hehe sem er frekar fyndið. Ásdísi og Aroni litla fannst þetta ekkert minna skemmtilegt heldur en Andrea, Aron og Alex. Eftir mikið hopp og hí var farið í klifurskipið og smábarnakastalann.....þar voru svo mikið af krökkum úr fótboltaliði á aldrinum 6-8 ára held ég að við vorum ekki viss hvort að óhætt væri að sleppa litlu laus. Þetta var frábært svo gaman hjá þeim öllum, meðan sátum við Helga og tjöttuðum um daginn og veginn með smá veðurumræðum :P Það var svo erfitt að fara vegna mikils fjörs en svo varð kl var næstum lokun...
Við segjum takk fyrir okkur og sjáumst síðar.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, sniðug síða hjá ykkur. Hvað er þetta með þig og hoppudótið;)Kv.Birgir

25 júní, 2006 17:35  

Skrifa ummæli

<< Home