Sundferð.

Um helgina fórum við pæjurnar í sund. Vá hvað þær systur eru ekkert líkar. Andrea hékk svoleiðis í sundbolnum til 3 ára aldurs, þurfti að teipa hann við mig til að halda honum á mér. Ásdís þarf ég að sleppa ekki augum af því hún bara göslast áfram. Svo mikil skvetta. Það verður hasar á næsta ári að fara með þær í sund. Ég er alveg búin að sjá það að ég mun fara reglulega í sund í sumar.
Fórum allar þrjár í klippingu í dag. Erum algerar skutlur. Oh hvað þetta er svo miklu betra, lítum svo vel út. Ef þið viljið sjá verðið þið bara að koma í heimsókn.
Hryllilegt gerðist, ég steingleymdi að það var skírn hjá Helgu frænku minni seinustu helgi....skammast mín alveg rosalega. Úff hvað ég fór illa með þetta, ég er sjálfum mér til skammar. Hver gleymir að mæta í skírn, þetta er svakalegt.
Svo er bara Eurovision. Ég spái Finnum eða Rússum sigri. Massa góð lög. Hvað haldið þið endilega segðið frá ykkar skoðun. Jæja núna er kl að verða hálf eitt að nóttu.
Góða nótt.

3 Comments:
Fleiri myndir...minna blaður ^^
HæHæ frænka gaman að sjá að þú eigir heimasíðu;) Kv Hulda
Elska að fá fréttir af ömmustelpunum mínum!!!
Alltaf eitthvað sem ég frétti ekki af - og vil svo gjarnan fylgjast með þeim sem allra best.
Og veit að ég er ekki ein um það...hehe.....
Skrifa ummæli
<< Home