Flutningar!

Já nú er þetta alveg að fara bresta á. Andrea hættir í skólanum á miðvikudag og Ásdís í leikskólanum. Þetta verður rosalega skrítið að fara út úr íbúðinni sem við erum búin að vera í í 3 ár. Ég er að pakka á fullu, gengur með rólegheitum. Ótrúlegt hvað draslið er allt í einu mikið. Man ekkert eftir að eiga svona mikið lol
Mamma er búin að vera með stelpurnar alla helgina, rosalegt stuð hjá þeim, fara í bíó í dag og svo í heimsókn til Sólveigar frænku. Það verður brjálað gaman hjá þeim =D
Offi kemur á morgun að hjálpa mér að klára að pakka og þrífa íbúðina svo fer hann austur á miðvikudaginn á bílnum því hann þarf að fara í vinnuna daginn eftir. Ég verð hér og bíð þangað til að þeir koma að taka dótið. Þá förum við í flugið austur á eftir kallfausknum.
Jæja farin að pakka!
