Heimafréttir

Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)

þriðjudagur, nóvember 06, 2007

Nú verður það langt ;'(

Þegar við komum heim úr vinnunni var Offi kominn heim, við mættum inn allir að faðma hæ og fegnar að sjá hann og hann okkur. Offi áhvað að hoppa út í smók þegar Ásdís sneri sér að honum setti skeifu og sagði : pabbi flugvélin ( Hún hélt að Offi væri að fara aftur). Offi hló og sagði nei bara rétt að fara út á tröppur. Þá snéri mín sér við og fór að leika kát. Stelpunum fannst æðislegt að fá hann heim þvílík værð hef ég ekki fundið lengi. Þetta var æðisleg vika var allt of stutt. Nú er bara að telja niður sem eftir er og ganga frá íbúðinni svo það verði auðvelt að flytja (henda út dóti sem ekki á að fara með). Seinasta tækifæri að fá sér La Kaffi Beggu :)

Andrea fékk að gista hjá Gústa og Sigrúnu. Henni fannst svo gaman að hún sofnaði ekki fyrr en 00:20 ca. eiturhress þegar við komum í mat um 13:30. svo fékk hún að fara í bíó með Bubba, Hilmari, Soffíu og Gústa Má á Ævintýraeyja Ibba. Svo þegar það var búið beint heim til Villa og Önnu í mat. Æðislegur matur eins og alltaf :P Frábær helgi takk fyrir okkur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home