Heimafréttir

Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)

sunnudagur, júní 25, 2006

ATH!!!

Já vitið þið hvað...dóttir mín klæddi sig sjálf í morgun. Hún fór í náttpeysuna sína reyndar ekki rétt enda er hún bara 14 mánaða. Mittið endaði í hálsmálinu og fótur í ermi.....en það er svo sem ekki aðalmálið he he.
Andrea þessi yndislega rós var hjá ömmu sinni, vinkona hennar (ömmu) kom í heimsókn. Vinkonan ætlaði að vera kammó við Andreu og heilsa henni heyrist í minni "ég má ekki tala við ókunnuga" snéri upp á sig og fór að leika sér. Mamma var búin að tala við vinkonu sína í dálitla stund þegar dóttir mín fer til hennar og spyr " þekkir þú hana" mamma sagðist þekkja hana og hún væri vinkona sín. Þá mátti þessi vinkona mömmu tala við hana. Ég sagði Andreu að hún mætti ekki tala við neinn nema að ég, pabbi hennar og amma hennar þekki viðkomandi og dóttir mín skildi þetta og fer eftir þessu. Blessun sé drottni :D

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home