Halló Akureyri
Seinustu helgi var farið á Akureyri með Helgu, Elmari, Alexi og Aroni sonum þeirra. Geggjað stuð!!!
Lögðum af stað kl:17 brunað úr bænum.....kallinn koma á eftir okkur á fákinum fráa Hondunni.
Það var eins og einhver risi stæði yfir Íslandi og helti úr baðkarinu yfir það allavegana vesturlandið. Manni var hætt að standa á sama. Offi var ca. klukkutíma á eftir okkur :)
Á seinustu heiðinni til Akureyrar ældi Ásdís yfir sig...aumingja stelpan ég varð að klæða hana úr í vindi og úða.....ég reif hana úr fór framí og klæddi hana í samfellu og sokkabuxur. Ojj þetta var ógeðslegt en svona er þetta. Þannig að við mættum til Akureyrar kl:00. Það var röð inn á svæðið, enda náði Offi okkur þar.....þessi elska. Allir voru látnir sýna skilríki (ung stelpa fyrir framan mig verður 18 í júlí og hún fékk ekki að koma inn, kom allaleiðina frá Reykjavík, þar stóð hún og vissi ekkert hvað hún átti að gera næst). Tjaldsvæðið var skipt fjölskyldufólk sér og partýfólk sér.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home