Takk fyrir okkur!
Jamm, jólin hafa verið góð. Maður er búinn að belgja sig út af jólamat og góðgæti....ekki eins og maður hafi gott af því :D
Krakkarnir eru sælir og góðir eftir fullt af jólapökkum. Andrea krækti sér í gubbupestina, það var ekki spennó. Ófeigur vinnur eins og hestur meðan konan situr heima og meltir...bara vinna á föstudeginum...snilld.
Ég og Andrea fórum í jóaboð og hittum föðurfjölskylduna...það var hressandi. Þau eru svo samrímd.
Ég ætla ekki að rekja jólagjafirnar upp, en Andrea fékk ps2 og leik og Ásdís fékk fisher price frá okkur. Getið bara gískað restina hehe.
Endilega komiði með smá komment...væri skemmtilegra en að tala við sjálfan sig.

