Bara segja frá!
Já Andreu gengur bara vel í skólanum. Hún á fullt af vinum og gengur vel að lesa, skrifa og reikna. Ég er svo stolt af henni. Hún stendur sig eins og hetja. Henni hlakkar svo til að flytja austur til að vera meira með pabba sínum, hún sakknar hanns svo. Líka að fara í nýju íbúðina og fá sér herbergi.
Ásdís er bara ljúf eins og hún er. Þarf að stytta eitthvað svefninn hjá henni á leikskólanum því að hún heldur Andreu vakandi. Liggur sko ekkert á að fara sofa, skoða dótið, lesa bókina og finna eitthvað til að tala við mömmu ^^
Mér líður vel, tel dagana þangað til við flytjum. Men oh men hvað það verður æðislegt að vera aftur með venjulegt heimilislíf, ekki þetta grasekkjudæmi. Nei takk ekki fyrir mig, ekki skil ég hvernig sjóarakellingarnar fara að þessu.
Offa gengur vel í vinnunni, honum finnst þetta skemmtilegt og það er rosalega góður mórall á staðnum sem er frábært. Reyndar sefur hann í stofunni á dýnu hjá Halla bróður hanns. Honum líður vel þar þótt að hjónarúmið okkar er betra :P
Jæja kveð í bili...bara smá lína fyrir svefninn
