Rúntur!!!
Krakkarnir og ég fórum til Flúða að kíkja á vinafólk okkar sem var í tjaldferðalagi. Það var æðislegt sitja og drekka kaffi við umræður, horfa á krakkana leika sér. Já góðar stundir.
Á heimleiðinni var ég að keyra inn á þjóðveg eitt, bíll fyrir framan mig sem var í hægri hröðun. ég var ekki búin að vera 10 sek inn á veginum þegar ég ákveð að taka framúr...við það heyri ég skrítið hljóð og skugga fyrir aftann og eitthvða í baksýnisspeglinum.....ég held bara áfram upp og yfir á hina við það sé ég mótorhjól við hliðina á mér. Hann gefur í við hliðina á mér og gefur mér hnefann upp eins og ég hefði svínað fyrir hann hmmmm. Gerði ég það??? Hann gefur í prjónar fram úr mér svo birtast 2 félagar hanns líka sem fara framúr. Stuttu seinna sé ég ljós þá var búið að taka félagann við ofhraðann akstur. Þess vegna spyr ég svínaði ég á hann eða kom hann á mikilli siglingu og ætlaði að taka framúr og ekki gefa mér tækifæri að sjá hann??? Allavegana hélt ég áfram yfir heiðina og áleiðis heim. Hva haldiði félagarnir voru búnir að ná mér á litlu kaffistofunni svinguðu framúr mér og hurfu út í buskann b.t.w. það var sko ekki lítil umferð. Þeir hafa verið að rúnta á ca. 150 km/klst í um ferð sem er 100 km/klst.
Bara þeir mótorhjólafólk sem sjá þetta blogg.....gefa okkur (vitleysingunum) að sjá ykkur það sést ekkert í ykkur fyrr en þið eruð farin að kyssa rassinn á bílnum alveg á mörkunum að þið þurfið að banka í bílinn til að maður viti af ykkur. Lítill og lipur en ósjáanlegur :S
Kv. Heimaliðið

1 Comments:
Very true my friend, very true...(sagt með rússneskum hreim)
Luv ya sis... ;)
hey, þú verður svo að kíkja á bloggið mitt og commenta á það...
Skrifa ummæli
<< Home