Heimafréttir

Þórunn Berglind Elíasdóttir, Ófeigur Gústafsson, Andrea Rut- og Ásdís Birta Ófeigsdóttir. Þetta erum við í hnotskurn, hver með sinni bragðtegund. Velkomin að kíkja á okkur :)

mánudagur, maí 19, 2008

Fréttir











Fórum á Kirkjuból um helgina eyddum henni þar. Ofsalega fannst stelpunum gaman þar. Úti að leika allann daginn, máttu varla vera að því að borða. Hoppa á trambolíninu, leika við hundana og fara á fjórhljólinu með Alla að gefa heimalyngunum.

Einar útskrifaðist á laugardag úr VA og var haldin mikil veisla honum til heiðurs.

Þegar ég sagði við stelpurnar að við værum að fara var það fyrsta sem valt út úr Andreu: Hvenær komum við aftur í 2 nætur. Svona var gaman.

Ásdís átti líka góða settningu: Réttu mér græna svínið, nei ekki þetta stóra. Var að meina litla lambið.

föstudagur, maí 02, 2008

Loksins fréttir !!


Já Andrea er loksins farin að læra sund....Þeir tóku loksins íþróttagolfið af og opnuðu fyrir sundlaugina. Góð nýting á húsi hehe. Árshátíðin hennar er liðin og allir bekkir voru með sýningu. Hennar var fyrst og þau sungu lag. Strax eftir lagið voru þau látin segja nafnið sitt, foreldra og hvað þeim langaði að gera. Það var nefnt slökkviliðsmaður, lögga o.s.fr. en dóttir mín vildi verða Model og svo pósaði hún. Algert krútt.

Ásdís er alveg hætt á bleiu og stækkar og dafnar eins og blóm. Verður með sýningu á morgun og við sk0ðum teikningarnar hennar. Hlakka svo til :)

Jæja kveðjur, fleiri fréttir seinna.

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Flutningar!


Já nú er þetta alveg að fara bresta á. Andrea hættir í skólanum á miðvikudag og Ásdís í leikskólanum. Þetta verður rosalega skrítið að fara út úr íbúðinni sem við erum búin að vera í í 3 ár. Ég er að pakka á fullu, gengur með rólegheitum. Ótrúlegt hvað draslið er allt í einu mikið. Man ekkert eftir að eiga svona mikið lol


Mamma er búin að vera með stelpurnar alla helgina, rosalegt stuð hjá þeim, fara í bíó í dag og svo í heimsókn til Sólveigar frænku. Það verður brjálað gaman hjá þeim =D


Offi kemur á morgun að hjálpa mér að klára að pakka og þrífa íbúðina svo fer hann austur á miðvikudaginn á bílnum því hann þarf að fara í vinnuna daginn eftir. Ég verð hér og bíð þangað til að þeir koma að taka dótið. Þá förum við í flugið austur á eftir kallfausknum.


Jæja farin að pakka!

þriðjudagur, nóvember 06, 2007

Nú verður það langt ;'(

Þegar við komum heim úr vinnunni var Offi kominn heim, við mættum inn allir að faðma hæ og fegnar að sjá hann og hann okkur. Offi áhvað að hoppa út í smók þegar Ásdís sneri sér að honum setti skeifu og sagði : pabbi flugvélin ( Hún hélt að Offi væri að fara aftur). Offi hló og sagði nei bara rétt að fara út á tröppur. Þá snéri mín sér við og fór að leika kát. Stelpunum fannst æðislegt að fá hann heim þvílík værð hef ég ekki fundið lengi. Þetta var æðisleg vika var allt of stutt. Nú er bara að telja niður sem eftir er og ganga frá íbúðinni svo það verði auðvelt að flytja (henda út dóti sem ekki á að fara með). Seinasta tækifæri að fá sér La Kaffi Beggu :)

Andrea fékk að gista hjá Gústa og Sigrúnu. Henni fannst svo gaman að hún sofnaði ekki fyrr en 00:20 ca. eiturhress þegar við komum í mat um 13:30. svo fékk hún að fara í bíó með Bubba, Hilmari, Soffíu og Gústa Má á Ævintýraeyja Ibba. Svo þegar það var búið beint heim til Villa og Önnu í mat. Æðislegur matur eins og alltaf :P Frábær helgi takk fyrir okkur.

fimmtudagur, október 25, 2007

Bara segja frá!

Já Andreu gengur bara vel í skólanum. Hún á fullt af vinum og gengur vel að lesa, skrifa og reikna. Ég er svo stolt af henni. Hún stendur sig eins og hetja. Henni hlakkar svo til að flytja austur til að vera meira með pabba sínum, hún sakknar hanns svo. Líka að fara í nýju íbúðina og fá sér herbergi.
Ásdís er bara ljúf eins og hún er. Þarf að stytta eitthvað svefninn hjá henni á leikskólanum því að hún heldur Andreu vakandi. Liggur sko ekkert á að fara sofa, skoða dótið, lesa bókina og finna eitthvað til að tala við mömmu ^^
Mér líður vel, tel dagana þangað til við flytjum. Men oh men hvað það verður æðislegt að vera aftur með venjulegt heimilislíf, ekki þetta grasekkjudæmi. Nei takk ekki fyrir mig, ekki skil ég hvernig sjóarakellingarnar fara að þessu.
Offa gengur vel í vinnunni, honum finnst þetta skemmtilegt og það er rosalega góður mórall á staðnum sem er frábært. Reyndar sefur hann í stofunni á dýnu hjá Halla bróður hanns. Honum líður vel þar þótt að hjónarúmið okkar er betra :P

Jæja kveð í bili...bara smá lína fyrir svefninn

föstudagur, ágúst 03, 2007

Viðeyarferð















Krakkarnir fóru með M&M (mömmu og Magga) til Viðeyjar. Ég fékk um 80 myndir og myndbönd en ætla bara sýna þær sem mér fannst flottastar. Enjoy!!

þriðjudagur, maí 29, 2007

Loksins!!

Við Andrea fórum út á plan um helgina og æfðum okkur að hjóla. Ég er nýbúin að taka hjálpara dekkin af. Henni gékk rosalega vel. Ég áhvað að labba í morgun í vinnuna og Andrea hjólaði alla leið og til baka. Hún er snillingur :D
Anyways Til Hamingju AndreA